Fréttir

Grindavík | Guðbjörg efst hjá Sjálfstæðisflokknum
Sunnudagur 8. mars 2026 kl. 22:50

Grindavík | Guðbjörg efst hjá Sjálfstæðisflokknum

Sjálfstæðisfélag Grindavíkur hélt fjölmennan félagsfund í Golfskálanum að Húsatóftum í dag. Tilefni fundarins var leiðbeinandi skoðunarkönnun meðal félagsmanna vegna uppstillingar á framboðslista félagsins fyrir komandi verkefni. Fundurinn var sérlega vel sóttur en ríflega 100 manns mættu til leiks, sem var umfram væntingar skipuleggjenda. Að sögn forsvarsmanna félagsins sýnir þessi góða mæting mikinn áhuga félagsmanna á framtíðarstarfinu í Grindavík.

Í skoðunarkönnuninni var leitað eftir áliti félagsmanna á skipan efstu sæta listans. Eftirtaldir aðilar hlutu flest atkvæði í fimm efstu sætin (í þessari röð):

  1. Guðbjörg Eyjólfsdóttir

    Nýsprautun vetrardekk
    Nýsprautun vetrardekk
  2. Hjálmar Hallgrímsson

  3. Ómar Davíð Ólafsson

  4. Ólöf Rún Óladóttir

  5. Eva Lind Matthíasdóttir

Niðurstaða könnunarinnar er leiðbeinandi fyrir áframhaldandi vinnu við listann. Strax í vikunni mun uppstillingarnefnd ræða við alla frambjóðendur til að kanna áhuga þeirra á þeim sætum sem þeim verða boðin í kjölfar niðurstöðunnar.